spot_img
HomeFréttirNBA: Swift var með of langan samning

NBA: Swift var með of langan samning

13:53

{mosimage}
(Riley fannst Swift vera með of langan samning)

Pat Riley hefur staðfest að hann hafi verið að reyna að fá Chucky Atkins frá Memphis síðastliðinn fimmtudag og að meiðsli Wades hafi ekki verið orsakavaldur þess að samningar náðust ekki.

Ýmsir miðlar hafa greint frá því að samningar hafi ekki náðst vegna þess að Riley hafi ekki viljað láta James Posey fara eftir að Dwayne Wade meiddist. En samkvæmt Riley er það ekki rétt.

Memphis vildi að Miami tæki líka Stromile Swift ásamt Chucky Atkins í skiptum fyrir James Posey en það vildi Miami ekki gera. Swift á eftir tæp 4 ár af samningi sínum og fannst Riley það vera of langur tími. Hann var ekki tilbúinn að binda peninga félagsins.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -