14:50
{mosimage}
Lesendur karfan.is hafa ekki legið á sínu í spurningunni hér vinstra megin á síðunni. Spurt er hvort fækka eigi liðum í Iceland Express deild karla og eru niðurstöðurnar nokkuð afgerandi.
88,8% lesenda segja þegar þetta er ritað að ekki eigi að fækka liðum í deildinni og því nokkuð ljóst að lesendur vilja sjá deildina óbreytta frá þessu keppnistímabili. Við leyfum könnuninni að lifa aðeins lengur en síðar í vikunni setjum við inn nýja könnun.