13:53
{mosimage}
Í dag heldur úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla áfram með tveim leikjum sem báðir hefjast kl. 16:00.
Í Keflavík er sjónvarpsleikur þegar heimamenn fá Snæfell í heimsókn. Snæfell vann fyrsta leikinn 84:67 en Keflavík verður að sigra í dag til að fá oddaleik.
Í Seljaskóla heldur einvígi Reykjavíkurrisana áfram þegar ÍR fær KR í heimsókn. ÍR sigraði fyrsta leikinn 65:73.
Í dag klárast einnig 1.deildin með fjórum leikjum. Þór frá Akureyri er þegar búið að sigra deildina og leika í Iceland Express deildinni að ári.
Stjarnan – KFÍ – liðið sem vinnur þennan leik kemst í úrslitakeppnina
Höttur – Þór Akureyri
Ármann/Þróttur – FSU
Valur – Breiðablik
Allir leikirnir hefjast klukkan 18:00 í 1. deildinni