9:14
{mosimage}
ToPo Helsinki (25-7) gerði góða ferð til Joensuun í gær þegar liðið heimsótti toppliðið Joensuun Kataja og sigraði 100-68.
Logi Gunnarsson átti stórleik og skoraði 30 stig, hitti úr 8 af 14 þriggja stiga skotum sínum auk þess sem hann tók 4 fráköst. ToPo er því svo gott sem búið að tryggja sér 4. sæti deildarinnar og heimaleikjarétt í 8 liða úrslitunum gegn Namika Lahti.
Mynd: Tuomas Venhola