spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Undanúrslit karla hefjast

Leikir dagsins: Undanúrslit karla hefjast

12:26

{mosimage}

Í dag klukkan 15:30 eigast Grindavík og Keflavík við í úrslitakeppni Iceland Express deild kvenna.

Staðan er 1-0 í einvíginu þar sem Keflavík vann fyrsta leikinn í miklum spennuleik 87:84 þar sem úrslit réðust á lokamínútunni. Það þarf að vinna 3 leiki til að komast í lokaúrslitin.

Í kvöld hefjast svo undanúrslit hjá körlunum þegar nágrannarnir frá Njarðvík og Grindavík mætast í Njarðvík og hefst leikurinn klukkan 18:00.

Í síðustu fjórum deildarleikjum þessara liða hefur þurft að framlengja í þremur þeirra til að fá fram úrslit svo það má búast við skemmtilegum leik. Það þarf þrjá sigra til að komast í lokaúrslitin.

 

www.kki.is

 

Fréttir
- Auglýsing -