10:15
{mosimage}
Heimasíður nokkurra félaga buðu upp á hin ýmsu 1. aprílgöbb í gær. KRingar sögðu að Ben Jacobsen sem lék með KR b í bikarnum gegn Grindavík væri kominn með írskt vegabréf og myndi leika með KR liðinu gegn Snæfelli í kvöld.
Fjölnismenn sögðu að eftir langan aðdraganda væri búið að sameina körfuknattleiksdeildir Fjölnis og Aftureldingar og myndu allar æfingar færast í Mosfellsbæinn. Nýtt nafn á liðinu væri Afturfjölnir.
Þá sögðu KFÍ menn frá því að þeir væru búnir að semja við Haukamanninn Sævar Haraldsson um að leika með liðinu næstu árin.