18:41
{mosimage}
(Helena Sverrisdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir lyfta bikurunum á loft, Matthías Imsland frá Iceland Express fylgist með)
Haukakonur lögðu Keflavík í fjórða úrslitaleiknum í Iceland Express deild kvenna í dag en lokatölur leiksins voru 88-77 Haukum í vil. Þetta er annar Íslandsmeistaratitill Hauka í röð og félagið hefur nú á milli handanna alla þá titla sem í boði eru á vegum Körfuknattleikssambands Íslands.
Haukar telfdu fram yngsta liðinu í Iceland Express deildinni í ár og voru með yngsta þjálfarann svo það er óhætt að fullyrða að sigur Hauka hafi verið sigur æskunnar.
Nánar verður greint frá leiknum síðar…
Mynd: Stefán Borgþórsson