18:58
{mosimage}
Undanúrslitaleikjum dagsins er lokið og verða það Breiðablik og KR sem eigast við úrslitum 11. flokks en Fjölnir og Njarðvík í 9. flokki karla.
Breiðablik vann Fjölni í morgun í æsispennandi leik 78-77 eftir að hafa leitt lengstum í leiknum. KR ingar byrjðu illa gegn Þór Þorlákshöfn og var leikurinn í járnum fram í hálfleik en þá stungu KR ingar af og sigruðu 101-92.
Úrslitaleikur KR og Breiðabliks fer fram á morgun klukkan 16 í Laugardalshöll.
Í 9. flokki karla unnu Fjölnismenn Hamar/Selfoss örugglega 77-49 en í leik Tindastóls og Njarðvíkur voru miklar sveiflur sem enduðu með 56-43 sigri Njarðvíkur.
Fjölnir og Njarðvík eigast við klukkan 14 á morgun.
Klukkan 12 á morgun eigast Keflavík og Haukar við í úrslitaleik 9. flokks kvenna.
Mynd: Jón Björn Ólafsson/karfan.is