spot_img
HomeFréttirLebron og félagar áfram í næstu umferð

Lebron og félagar áfram í næstu umferð

dCleveland Cavs liðið tryggði sér áframhaldandi göngu í úrslitakeppni NBA í nótt með sigri á Washington 97-90. Þar með var liði Washington "sópað" úr keppninni líkt og meistarar Miami. Lebron James fór fyrir sínum mönnum í nótt sem fyrr og setti niður 31 stig ásamt því að hirða 11 fráköst. Greinilegt að lið Washington sár saknar Gilbert Arenas sem er meiddur. Allt um leikinn hér Í öðrum leikjum þá sigraði San Antonio Spurs lið Denver Nuggets með 3 stigum þar sem gamla brýnið Robert Horry setti niður þrist á loka sekúndum leiksins. Og svo náðu Houston Rockets forystu en og aftur í einvígi sínu gegn Utah Jazz með góðum sigri í nótt 96-92. Tracy Mcgrady átti stórleik fyrir Houston, skoraði 26 stig og gaf 16 stoðsendingar.

 

Houston – Utah    SAS – Denver

Fréttir
- Auglýsing -