14:51
Rashard Lewis sem var með lausan samning eftir síðustu leiktíð hefur samkvæmt fréttum vestan hafs samið við Orlando Magic. Lewis þarf líklega ekki þurfa á lánum að halda á næstunni þar sem þessi samningur mun færa honum 75 milljónir dala á næstu 5 árum. Reglur NBA segja þó að kappinn megi ekki skrifa undir fyrr en 11. júlí.
Eina sem gæti komið í veg fyrir að Lewis fari til Orlando væri að Seattle bjóði honum 6 ára samning sem yrði þá eitthvað "sverari" peningalega séð. Lewis átti víst að hafa snætt kvöldverð með framkvæmdastjóra og "Íslands vininum" Otis Smith á sunnudaginn var og þá hafi þessum samning verið handsalað.