10:38
{mosimage}
Heimasíða KFÍ greinir frá því að liðið hefur samið við bandaríska leikmanninn Chris Isom. Hann lék með East Texas Baptist háskólanum í Texas síðastliðinn vetur og var með 22,2 stig að meðaltali í leik og 10,3 fráköst.
Eftirnafnið Isom ætti að hljóma kunnuglega í eyrum Íslendinga en tvíburabróðir Chris, Cedric samdi við Þór Ak. í vor.
Mynd: www.michaelshepard.net