spot_img
HomeFréttirBandaríkjamenn halda sigurgöngunni áfram

Bandaríkjamenn halda sigurgöngunni áfram

7:50

{mosimage}

Bandaríkjamenn eru greinilega ákveðnir í því að sýna heiminum hvar vagga körfuboltans er. Í gær fór fram önnur umferð á Ameríkumótinu og tóku heimamenn í Bandaríkjunum á móti liði Virginíueyja og sigruðu 123-59. Carmelo Anthony og Michael Redd voru stigahæstir Bandaríkjamanna með 22 stig en Kevin Sheppard skoraði mest fyrir Virginíueyjar, 11 stig.

Önnur úrslit í gær urðu þau að Argentína vann Uruguay 90-69, Kanada vann Venezuela 80-73 og Puerto Rico vann Panama 108-67. 

Keppni heldur svo áfram í kvöld og fá Bandaríkjamenn hvíld.

Leikir dagsins eru: 

Mexíkó – Panama

Kanada – Virginíueyjar

Puerto Rico – Argentína

Brasilía – Venezuela 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -