spot_img
HomeFréttirÞrjú lið berjast um eitt laust sæti á Eurobasket

Þrjú lið berjast um eitt laust sæti á Eurobasket

8:30

{mosimage}

Ísrael getur enn komist á Eurobasket 

Undanriðlum fyrir keppni um eina lausa sætið sem eftir er á Evrópumótinu á Spáni sem fram fer í september, lauk í gær. Þær þrjár þjóðir sem mæta til Spánar sem mæta til Spánar í næstu viku og leika um þetta eina sæti eru Bosnía, Makedónía og Ísrael.

Fyrir keppnina í Serbíu fyrir tveimur árum komust Ísraelar einmitt áfram úr svona undankeppni og tryggðu sér þátttökuréttinn í Serbíu. 

Á sama tíma og þessar þrjár þjóðir eigast við á Spáni verða aðrar þrjár þjóðir að spila um öllu leiðinlegra hlutskipti, á sama stað. Frændur okkar Danir og Svíar ásamt Ungverjum leika þá um hvaða tvær þjóðir falla í B deild að ári. 

[email protected] 

Mynd: Sanne Berg

Fréttir
- Auglýsing -