20:13
{mosimage}
(Logi á fleygiferð upp að körfu gestanna)
Staðan er 36-38 Georgíumönnum í vil í Laugardalshöll í Evrópukeppni B-þjóða þar sem Logi Gunnarsson hefur farið á kostum í fyrri hálfleik hjá íslenska liðinu og gert 16 stig og þar af fyrstu 12 stig íslenska liðsins í leiknum.
Gestirnir hafa verið nokkuð sveiflukenndir en koma með fína kafla inn á milli og ná þá forystunni en íslenska liðið hefur verið að leika jafnan og þéttan bolta og hafa staðið sig vel í frákastabaráttunni. Manuchar er stigahæstur í liði gestanna með 14 stig í hálfleik.
Nánar síðar…