17:15
{mosimage}
Tvö lið eru að eltast við framherjann P.J. Brown og er Phoenix annað þeirra. Steve Kerr, yfirmaður körfuboltamála hjá Phoenix, sagði að félagið væri tilbúið að bíða eftir að hann tæki ákvörðun um næsta tímabil en hann er að íhuga að hætta. Á meðan myndi félagið ekki ráða nýjan leikmann.
,,Ég sagði við P.J. að frá okkar sjónarhóli gæti hann tekið sér smá tíma til að hugsa málið og ef hann segði við okkur í október eða jafnvel nóvember að hann vildi koma til okkar, myndum við taka við honum. Yfir sumarið virðist það vera góð hugmynd að leggja skóna á hilluna en þegar leikirnir byrja er sú hugmynd ekki eins spennandi.”
Phoenix er að halda einu sæti lausu fyrir Brown en liðið gæti þó tekið inn leikmann og látið hann fara ef Brown ætlar að spila með næsta vetur.