spot_img
HomeFréttirSkeljungur býður á Ísland - Holland

Skeljungur býður á Ísland – Holland

09:39

{mosimage}

Fyrsti landsleikur A-landsliðs kvenna verður á laugardaginn þegar Ísland mætir Hollandi í b-deild Evrópukeppni landsliða. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og verður leikinn að Ásvöllum í Hafnarfirði.

Skeljungur mun bjóða áhorfendum frítt á leikinn en Skeljungur og KKÍ undirrituðu á þriðjudaginn nýjan samstarfssamning. Í honum felst að Skeljungur verði aðalstyrktaraðili landsliðs og afreksstarfs KKÍ.

Leikurinn á laugardaginn er mjög mikilvægur fyrir íslenska landsliðið. Ef að stelpunum tekst að sigra Holland eiga þær möguleika á því að vinna riðilinn og komast áfram í keppninni. Íslenska liðið, sem tapaði naumlega fyrir Hollendingum síðasta haust, hefur verið að æfa vel í sumar fyrir leikinn og það verður spennandi að fylgjast með þeim í leiknum á laugardaginn.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV.

www.ruv.is

Fréttir
- Auglýsing -