21:43
{mosimage}
(Þorsteinn Húnfjörð var sprækur í liði Bikarmeistaranna í kvöld)
Önnur umferð í Reykjavíkurmótinu fór fram í kvöld þar sem Íslandsmeistarar KR og Bikarmeistarar ÍR höfðu stórsigra. ÍR burstaði Valsmenn 91-61 í Seljaskóla og KR tók Fjölni í kennslustund á nýja parketinu í Grafarvoginum 72-111.
Viðureign Fjölnis og KR var aldrei spennandi og höfðu Íslandsmeistararnir tökin á leiknum allt frá upphafi til enda. Liðið var að hitta vel úr þriggja stiga skotum sínum enda valinn maður í hverju rúmi.
Valsmönnum tókst lengi vel að hanga í Bikarmeisturum ÍR en heimamenn stungu af á lokasprettinum án þeirra Eiríks Önundarsonar og Hreggviðs Magnússonar sem fylgdust með af tréverkinu.
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}