spot_img
HomeFréttirHelgi Freyr tekur sér frí frá körfubolta

Helgi Freyr tekur sér frí frá körfubolta

17:53

{mosimage}

Helgi Freyr Margeirsson sem lék með liði Randers Cimbria í dönsku úrvalsdeildinni í fyrra og hugðist gera í vetur hefur ákveðið að taka sér frí frá körfubolta, að minnsta kosti fram að áramótum.

Helgi Freyr sem er í námi í Árósum sagði í samtali við karfan.is ekki hafa tíma til að sinna körfuboltanum sem skildi án þess að það kæmi niður á náminu og hann yrði að forgangsraða svona núna. Hann myndi svo skoða stöðuna aftur um áramót.

Helgi Freyr lék einn æfingaleik með liðinu á dögunum.

Þess má geta að þjálfari Randers er Flemming Stie sem lék með Helga Frey í Tindastól um árið.

[email protected] 

Mynd: www.karfan.is

Fréttir
- Auglýsing -