spot_img
HomeFréttirElvar semur við litháísku meistarana

Elvar semur við litháísku meistarana

Elvar Már Friðriksson hefur samið við lið meistaralið Rytas Vilnius í Litháen, en frá þessu greinir félagið á heimasíðu sinni í dag.

Njarðvíkingurinn kemur til félagsins frá Tortona á Ítalíu, þar sem hann lék seinni hluta síðasta tímabils.

Rytas eru líkt og áður segir ríkjandi meistarar í Litháen, en félagið rauf 11 ára samfellda sigurgöngu Zalgiris frá Kaunas síðasta vor.

Elvar Már þekkir deildina í Litháen nokkuð vel eftir að hafa leikið fyrir Šiauliai tímabilið 2020-21, en það tímabil var hann valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar eftir að hafa skilað 15 stigum og 8 stoðsendingum að meðaltali í leik fyrir liðið. Mun þetta hafa verið í eitt af aðeins fimm skiptum sem erlendur leikmaður hefur verið valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar.

Fréttir
- Auglýsing -