06:15
{mosimage}
Íslenska kvennalandsliðið mun leika lokaleik sinn í b-deild Evrópukeppni landsliða í dag þegar liðið mætir Írum.
Liðið lenti á Írlandi í gærmorgun og mun ná að æfa tvisvar fyrir leikinn sem verður klukkan 19:00 í dag.
Ísland sigraði Írland í leik liðanna síðasta haust 68-56 og er stefnan að sjálfsögðu sett á sigur í þessum leik. Takist það er öruggt að Ísland verður fyrir ofan Írland í riðlinum.
Guðjón Skúlason, þjálfari liðsins, gerði eina breytingu á leikmannahópnum en Svava Ósk Stefánsdóttir kemur aftur inn í hópinn í staðinn fyrir Ingibjörgu Jakobsdóttur.
mynd: [email protected]
www.kki.is