7:00
{mosimage}
Nú þegar B deild Evrópukeppninnar er lokið er fróðlegt að kíkja á lista yfir efstu menn í nokkrum tölfræðiþáttum. Íslendingar eiga einn mann á topp fimm lista en það er Jakob Örn Sigurðarson sem er með flestar stoðsendingar allra í keppninni, 4,3 að meðaltali í leik.
Stigahæsti leikmaður keppninnar varð Georgíumaðurinn Zaza Pchulia með 19,9 stig en Brenton Birmingham var stigahæstur Íslendinga með 15,6 stig. Í fráköstum var Virgil Stanescu frá Rúmeníu efstur með 10,8 fráköst en efstur Íslendinga er Hlynur Bæringsson með 9 fráköst en hann lék einungis 4 leiki en af þeim sem léku bæði haustin var Brenton Birmingham efstur með 5,9 fráköst.
Mynd: [email protected]