16:54
{mosimage}
Tindastóll hefur ákveðið að ganga til samninga við Serge Poppe sem kom til reynslu í síðustu viku. Hann spilaði síðast með Tusculum skólanum í Bandaríkjunum og var með rúm 11 stig að meðaltali í leik og 5 fráköst. Hann er tæpir tveir metrar og spilar sem framherji og er Belgi að uppruna.
Þá eru komnir til Tindastólsliðsins fjórir erlendir leikmenn og fyrsti leikur liðsins í Poweradebikarnum er á föstudag þegar Stólarnir mæta Hamri kl. 19:15 í Hveragerði.