19:29
{mosimage}
Nú að loknu Evrópumóti er tilvalið að líta á nokkrar staðreyndir. 1600 fjölmiðlamenn sóttu um aðgang að mótinu en einungis 1200 fengu aðgang. 5,38 milljónir Spánverja horfðu á úrslitaleikinn í sjónvarpi sem er 31,3% af öllum sem voru að horfa á sjónvarp á Spáni á þeim tíma.
Þar með toppaði leikurinn áhorf á formúlu 1 sem fram fór á laugardag, 5,34 milljónir horfðu á hana og á landsleik Spánar og Lettlands í undakeppni EM í fótbolta horfðu 5,29 milljónir manna.
Af öðrum leikjum Spánar sem sýndir voru í sjónvarpi má nefna að 2,94 milljónir horfðu á Spánn – Þýskaland í 8 liða úrslitunum, 2,56 milljónir horfðu á Spánn – Ísrael í milliriðlinum og 2,27 milljónir horfðu á Spánn – Grikkland í undanúrslitum.