spot_img
HomeFréttirGuðrún Ósk og Sigrún Sjöfn Ámundadætur til liðs við KR

Guðrún Ósk og Sigrún Sjöfn Ámundadætur til liðs við KR

12:30

{mosimage}

Kvennalið KR hefur fengið gríðarlegan styrk fyrir komandi átök, systurnar Guðrún Ósk og Sigrún Sjöfn Ámundadætur hafa ákveðið að leika með KR-ingum næsta vetur.  Þær voru báðar í meistaraliði Hauka síðasta vetur.

Guðrún Ósk sem er fædd 1987 og Sigrún Sjöfn sem er fædd 1988 hafa ákveðið að leika með KR-ingum í vetur og styrkja þær nýliða KR töluvert fyrir komandi átök.  Sigrún Sjöfn er A-landsliðskona og lék hún með landsliðinu gegn Hollandi og Írlandi.  Guðrún Ósk hefur leikið með yngri landsliðunum og því báðar systurnar landsliðskonur.

Systurnar eru upphaflega úr Borgarfirðinum og léku þær með Skallagrím, en báðar léku þær með Haukum síðustu misseri og hafa þær verið gríðarlega sigursælar þar.

 

www.kr.is/karfa

 

Mynd: www.kr.is/karfa

Fréttir
- Auglýsing -