spot_img
HomeFréttirNjarðvíkingar áfram í Powerade-bikarnum

Njarðvíkingar áfram í Powerade-bikarnum

Brenton drjúgur í lokinn fyrir NjarðvíkNjarðvíkingar tryggðu sér farseðilinn í 4-liða úrslit Poweraid bikarsins með því að leggja ÍR af velli í Ljónagryfjunni 87-80. Jafnt var á stigum þegar um 3 mínútur voru eftir af leiknum en Njarðvíkingar voru sprækari á lokasprettinum og kláruðu dæmið. Chuck Long var stigahæstur heimamanna með 25 stig og næstur honum kom Brenton Birmingham með 19. Steinar Arason setti niður 21 stig fyrir ÍR. Í lið ÍR vantaði Hreggvið Magnússon og hjá Njarðvíkingum vantaði Sverri Þór Sverrisson.

Fréttir
- Auglýsing -