8:48
{mosimage}
Einn leikur fer fram í Poweradebikar kvenna í kvöld þegar sigurvegarar síðasta árs, Haukar, taka á móti 1. deildarliði Snæfells.
Það verður forvitnilegt að sjá Hauka í kvöld en liðið er nokkuð breytt frá síðasta vetri, Helena Sverrisdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir og systurnar Sigrún og Guðrún Ámundadætur hafa yfirgefið liðið. Á móti hafa þær fengið Telmu Fjalarsdóttur og Ösp Jóhannsdóttur auk þess breyting hefur orðið á erlendum leikmanni liðsins.
Um Snæfell er ekki mikið vitað en liðið stóð sig vel í 2. deildinni (núverandi 1. deild) í fyrra.