spot_img
HomeFréttirBosnía og Bretland í A deild

Bosnía og Bretland í A deild

19:43

{mosimage}

Raziya Mujanovic var stigahæst Bosníustúlkna í B deild 

Það verða Bosnía Hersegóvína og Bretland sem taka sæti Svía og Slóvena í A deild kvenna að ári. Bosnía Hersegóvína vann seinni leik sinn gegn Noregi í kvöld 71-45, í B deildinni og þar með báða leikina. Bretar unnu einnig báða leikina gegn Hollendingum, þann seinni 60-54 í Hollandi í kvöld.

Svíar og Slóvenar töpuðu fallbaráttunni í A deildinni fyrir Ungverjum. Það verður því aðeins ein Norðurlandaþjóð í A deild næsta ár, Finnar.

Það er einnig ljóst að uppgangur er í breska boltanum en bæði karla og kvennaliðið unnu sér rétt til að leika í A deild að ári.

[email protected]

Mynd: www.fibaeurope.com

Fréttir
- Auglýsing -