7:36
{mosimage}
Litháinn snjalli Sarunas Jasikevicius hefur samið við Evrópumeistara Panahtinaikos. Sarunas sem var leystur undan samningi við Golden State á dögunum er frábær viðbót við hið stjörnuprýdda lið Panathinaikos sem m.a. inniheldur Konstantions Tsartsaris sem lék með Grindavík fyrir um 10 árum.
Í leikmannahópi þeirra er nú 5 grískir landsliðsmenn, 1 slóvenskur, 1 serbneskur, 1 króatískur, 1 búlgarskur og svo litháíski stjörnuleikmaðurinn Sarunas. Það gæti orðið erfitt fyrir þjálfara liðsins, Obradovic, að deila mínútum á menn svo þeir verði sáttir.
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma hefja leik í Meistaradeildinni 25. október í Aþenu þar sem þeir mæta hinu stjörnuprýdda liði Panathinaikos. Það verður fróðlegt að fylgjast með okkar manni þar.
Mynd: www.fibaeurope.com