6:46
{mosimage}
Jakob í leik með Univer
Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Univer Kecskemét hófu keppni í gær í ungversku deildinn þegar þeir heimsóttu Atomeromu sem hafnaði í öðru sæti deildarinnar. Univer sigraði 77-76 eftir æsispennandi leik.
Heimamenn byrjðu betur og komust í 10-0 og það var ekki fyrr en í blálokin sem Univer komst yfir með síðust körfu leiksins og lönduðu þar með sigrinum. Jakob skoraði 8 stig og gaf 5 stoðsendingar.
Gijon, lið Loga Gunnarssonar, tók á móti Qalat Cajasol í gær og sigraði 58-49 og hefur því unnið þrjá fyrstu leiki sína í spænsku LEB Platínum deildinni. Logi lék aðeins í 8 mínútur í gær en hann meiddist og mun þurfa að hvíla í viku að minnsta kosti.
Damon Johnson var í byrjunarliði Huelva þegar liðið heimsótti Tenerife Rural og tapaði 92-96. Damon var með 11 stig og 4 fráköst. Pavel Ermolinskij lék ekki með vegna meiðsla. Þetta var fyrsti tapleikur Huelva á tímabilinu.
Randers Cimbria sem Helgi Freyr Margeirsson leikur með tók á móti Åbyhøj í gær í dönsku úrvalsdeildinni Stóran hluta leiksins leit út fyrir öruggan sigur heimamanna en það var ekki fyrr en í fjórða leikhluta sem Åbyhøj tókst að jafna. Helgi skoraði svo tvær þriggja stigakörfur, Randers sex stigum yfir og 7 mínútur eftir. En þessar 7 mínútur sigraði Åbyhøj 24-6 og leikinn 91-79. Helgi Freyr skoraði 18 stig á þeim 30 mínútum sem hann spilaði.
Mynd: Jakob Örn Sigurðarson