Undir 18 ára stúlknalið Íslands leikur um 11.sæti á Evrópumótinu í Búlgaríu í dag.
Fyrir leik dagsins hafði liðið tapað fyrstu tveimur leikjum sínum gegn Hollandi og Slóvakíu, en lagt Noreg í lokaleik riðlakeppninnar. Þá höfðu þær lagt Austurríki og Danmörku í umspils riðlinum áður en þær töpuðu gegn Írlandi í gær.
Í úrslitaleik um 11. sætið mætir Ísland liði Bretlands kl. 15:15 í dag.
Hérna verður hægt að fylgjast með lifandi tölfræði
Hérna er 12 leikmanna lokahópur undir 18 ára liðs stúlkna
Leikurinn verður líkt og aðrir leikir mótsins sýndur í beinni vefútsendingu FIBA, en hana er hægt að nálgast hér.