spot_img
HomeFréttirGriffin: Verðum að bæta vörnina með hverjum leik

Griffin: Verðum að bæta vörnina með hverjum leik

11:10 

{mosimage}

 

(Griffin í vörninni gegn Stjörnunni í gær) 

 

Jonathan Griffin, Bandaríkjamaðurinn í liði Grindavíkur, var kátur í leikslok þegar Grindvíkingar höfðu nauman 86-92 sigur á Stjörnunni í Garðabæ. Griffin var drjúgur á lokasprettinum fyrir Grindavík þar sem hann stal mikilvægum boltum og gerði mikilvægar körfur. Hann hefur verið að finna sig vel í síðustu tveimur leikjum og í gærkvöldi gerði hann 24 stig og tók 4 fráköst gegn nýliðunum.

 

,,Já, ég er að finna mig ágætlega þegar leikirnir hafa verið í járnum og maður reynir bara að lesa vel í sóknir andstæðinganna og ná til boltans, skapa svo eitthvað fyrir sjálfan sig eða liðsfélagana,” sagði Griffin sem var einnig atkvæðamikill á lokasprettinum gegn Íslandsmeisturum KR á dögunum þegar Grindavík hafði sigur gegn þeim í Röstinni.

 

,,Við erum búnir að jafna okkur á Keflvíkurleiknum, við vorum hægfara í þeim leik og héldum að við myndum vinna leikinn sama hvernig við lékum. Eftir þann leik áttum við góðar æfingar og jukum ákafann í vörninni og hana verðum við að bæta með hverjum leik,” sagði Griffin og bætti því við að stefna Grindvíkinga í ár væri að keppa um alla titlana.

 

,,Við viljum fara lengra í ár heldur en í fyrra og við eigum að vera orðið betra lið en þá þar sem við höfum bara bætt við okkur og það leikmanni á borð við Igor Beljanski. Við vitum vel að það er ekki vandamál fyrir okkur að skora körfur en áherslan er á vörnina og bæta hana með hverjum degi,” sagði Griffin sem verður í eldlínunni með gulum þegar Hamar frá Hveragerði mætir í Röstina.

 

www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -