8:40
{mosimage}
Eins og flestir ættu að vita er Helena Sverrisdóttir fyrrverandi leikmaður Hauka kominn til Bandaríkjanna þar sem hún spilar körfubolta og stundar nám. Á heimasíðu Hauka má finna viðtal við hana um lífið þarna úti og myndir af liðinu.
Í viðtalinu segir hún m.a. að munurinn á að æfa og leika með Haukum annars vegar og skólaliði sínu hins vegar sé að úti sé þetta eins og vinna, enda verið að borga skólann fyrir hana í staðinn.
Hér má lesa viðtalið í heild.
Mynd: [email protected]