13:04
{mosimage}
Fjórir leikir fara fram í Iceland Express deild karla í kvöld. Keflavík heimsækir Stjörnuna í Garðabæinn en Keflavík er enn taplaust í deildinni. Stjarnan byrjaði mótið illa en skiptu um bandarískan leikmann á dögunum héldu í við Íslandsmeistara KR í DHL höllinni á mánudag.
Á Sauðárkróki verður Norðurlandsslagur þar sem heimamenn taka á móti Þór Ak. Bæði lið hafa verið í ströggli í haust en mikill rígur er á milli liðanna og því má búast við baráttuleik.
Á heimasíðu Þórs er Páll Jóhannesson búinn að taka saman skemmtilega upphitun fyrir leikinn.
Í Grafarvogi taka Fjölnismenn á móti Grindavík. Líklega mun nýr evrópskur leikmaður leika með Fjölnisliðinu sem hefur byrjað mótið mjög illa. Grindavík hefur hins vegar aðeins tapað einum leik.
Að lokum stýrir Ágúst Björgvinsson Hamarsmönnum í fyrsta skipti á heimavelli en liðið tekur á móti Njarðvík. Hamarsmenn sitja á botni deildarinnar með einn sigur en Njarðvík sem byrjaði mótið vel hefur tapað þremur síðustu leikjum.
Allir leikirnir hefjast kl 19:15
Við skorum á alla að mæta á völlinn og hvetja sína menn eða bara að njóta fallegrar íþróttar.
Mynd: Rúnar Haukur Ingimarsson