13:32
{mosimage}
(Svavar og félagar í Tindastól mæta Breiðablik í kvöld)
Í kvöld fara fram fimm leikir í Lýsingarbikarkeppni karla. Tveir leikjanna hefjast kl. 20:00 í kvöld en þrír kl. 19:15. Valur tekur á móti Hamri, UMFH fær UMFG í heimsókn og Haukar B taka á móti Stjörnunni. Þá mætast KFÍ og Íslandsmeistarar KR á Ísafirði og leikur kvöldsins verður vafalítið barátta Breiðabliks og Tindastóls.
Blikar eru á toppi 1. deildar karla enn ósigraðir en Tindastólsmenn sitja í 10. sæti Iceland Express deildarinnar svo von er á hörkuslag í Smáranum í kvöld. Valsmenn taka svo á móti Hamri en Valur leikur í 1. deild og eru í 3. sæti deildarinnar en Hamar situr á botni Iceland Exrpess deildarinnar.
Haukar B fá það vandasama verkefni að mæta nýliðum Stjörnunnar í Iceland Express deild karla og KFÍ fær Íslandsmeistara KR í heimsókn. Þá munu Hrunamenn taka á móti Grindvíkingum og verður við ramman reip að draga hjá heimamönnum.
Fös. 23.nóv – 20.00 Vodafone höllin Valur – Hamar
Fös. 23.nóv – 20.00 Flúðir UMFH – UMFG
Fös. 23.nóv – 19.15 Smárinn Breiðablik – Tindastóll
Fös. 23.nóv – 19.15 Strandgata Haukar B – Stjarnan
Fös. 23.nóv – 19.15 Ísafjörður KFÍ – KR