spot_img
HomeFréttirGuðmundur Skúlason tekur við Reyni

Guðmundur Skúlason tekur við Reyni

16:45 

{mosimage}

 

(Frá leik Reynis og Þróttar í Vogum) 

 

Í dag tók Guðmundur Skúlason við Reynismönnum í 1. deild karla en hann á að baki marga leiki með félaginu og var við stjórnartaumana eitt tímabil þegar liðið lék í 2. deild. Fráfarandi þjálfarar Hlynur Jónsson og Rúnar Pálsson verða áfram leikmenn hjá liðinu.

 

Á heimasíðu Reynis segir að vonast sé til þess að með ráðningu Guðmundar geti þeir Hlynur og Rúnar einbeitt sér meir að leiknum sem leikmenn í stað þess að hafa áhyggjur af innáskiptingum á meðan leik stendur.

 

Guðmundar bíður ærinn starfi þar sem hann tekur við Reynismönnum í næst neðsta sæti deildarinnar með tvö stig eftir sex leiki.

Heimild: www.reynir.is  

Mynd: www.vf.is – Frá leik Reynis og Þróttar í Vogum fyrr á leiktíðinni en þar höfðu Reynismenn sinn fyrsta deildarsigur og þann eina til þessa.

Fréttir
- Auglýsing -