spot_img
HomeFréttirLýsingarbikarinn.is nýr vefur tileinkaður bikarkeppninni

Lýsingarbikarinn.is nýr vefur tileinkaður bikarkeppninni

09:45
{mosimage}
 

Í ár mun Lýsing í fimmta sinn setja nafn sitt við bikarkeppnina í körfuknattleik og af þeim sökum hefur verið ákveðið að opna vefsíðuna www.lysingarbikarinn.is þar sem fréttir frá bikarkeppninni sem og öflug heimildaskráning mun eiga sér stað. Nú þegar er kominn inn nokkur fjöldi frétta frá bikarkeppninni ásamt öðru áhugaverðu efni. 

Á næstu vikum er það ætlun Lýsingar að setja inn á vefinn alla úrslitaleikina í Lýsingarbikarnum síðan 2003 eða síðan keppnin hóf göngu sína. Leikirnir munu koma frá RÚV sem sýnt hefur í beinni útsendingu frá öllum leikjunum. Atóm 01 fer með hönnun og uppsetningu á vefnum og þá munu karfan.is og Lýsing starfa náið saman við að búa til efni á vefsíðuna. 

Síðan sjálf, www.lysingarbikarinn.is bíður upp á ýmsa möguleika. Þar gefur t.d. að líta fréttir frá keppninni, viðtöl við hina ýmsu aðila, sögu bikarkeppninnar af vefsíðu KKÍ, tenglar á aðrar áhugaverðar síður og þá geta lesendur einnig sent inn upplýsingar um sjálfa sig í von um að vinna miða á úrslitaleikina sem fara í Laugardalshöll í febrúar. Einnig er að finna á síðunni greinargóðar útskýringar um hvernig fólk geti tekið þátt í skemmtilegum leik þar sem vinningurinn er ekki af verri endanum, afnot af bifreið í heilt  ár að verðmæti allt að 2.500.000 króna.

www.lysingarbikarinn.is

Fréttir
- Auglýsing -