18:00
{mosimage}
Átta leikir fara fram í NBA deildinni í nótt og verður viðureign Dallas Mavericks og Orlando Magic sýnd í beinni útsendingu á NBA TV kl. 01:30 í nótt. Orlando Magic eru á toppi suðausturriðils á Austurströnd deildarinnar með 17 sigra og 8 tapleiki en Dallas er í 2. sæti suðvesturriðils Vesturstrandarinnar með 16 sigra og 9 tapleiki.
Orlando tapaði síðasta leik en Dallas hefur unnið tvo síðustu leiki sína og freista þess að ná þriðja deildarsigrinum í röð í nótt. Leikurinn fer fram í American Airlines Center í Dallas þar sem Magic hefur ekki tekist að ná í útisigur í meira en áratug. Orlando hefur þó aldrei byrjað leiktíð betur en í ár í sögu félagsins og hafa unnið 12 af 15 útileikjum sínum í ár.
Leikir næturinnar:
Atlanta Hawks – Utah Jazz
Cleveland Cavaliers – Milwaukee Bucks
New York Knicks – Indiana Pacers
Miami Heat – Minnesota Timberwolves
Memphis Grizzlies – Golden State Warriors
Dallas Mavericks – Orlando Magic
San Antonio Spurs – Phoenix Suns
Portland Trailblazers – New Orleans Hornets