14:14
{mosimage}
(Ungur og öflugur Fjölnismaður)
Næstkomandi fimmtudag og föstudag mun körfuknattleiksdeild Fjölnis standa fyrir æfingabúðum fyrir stelpur og stráka á aldrinum 6 – 16 ára. (1 – 10 bekk). Æfingabúðirnar verða í Dalhúsum og hefjast kl. 12 báða dagana og standa til 17. Þjálfarar eru Ágúst Jensson og Bjarni Karlssson.
Gjaldið fyrir búðirnar er krónur 3500 og er innifalið í því pizzuveisla í lok æfingabúðanna á föstudeginum sem og nesti báða dagana. Þetta er tilvalið tækifæri bæði fyrir þá sem vilja prófa að æfa körfubolta sem og þá sem æfa nú þegar til að taka þátt í skemmtilegum æfingabúðum svona rétt fyrir jólin.
Skráning fer fram í síma 6602774 (Ágúst) eða með tölvupósti á [email protected]