9:15
{mosimage}
Leik Fjölnis og Keflavíkur sem fara átti fram í Iceland Express deildinni milli jóla og nýárs hefur verið frestað til 17. janúar þar sem fram fer viðgerð á gólfinu í Íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum.
Það verður forvitnilegt að sjá hvort Fjölnismenn ná að snúa við blaðinu á nýju gólfi en liðið hefur einungis unnið 1 af 4 heimaleikjum sínum fyrir jól.
Mynd: Snorri Örn Arnaldsson