spot_img
HomeFréttirGrindavík og KR mætast í stórleik kvöldsins í DHL-Höllinni

Grindavík og KR mætast í stórleik kvöldsins í DHL-Höllinni

14:29
{mosimage}

(Tekst Þorleifi og félögum í Grindavík að leggja Íslandsmeistarna að velli í kvöld?) 

Fjórir leikir fara fram í Iceland Express deild karla í kvöld og hefjast þeir allir kl. 19:15. Bein textalýsing verður hér á Karfan.is frá viðureign Njarðvíkur og Þórs í Ljónagryfjunni og KR TV verður með beina netútsendingu frá toppslag KR og Grindavíkur í DHL-Höllinni. Í Ásgarði mætast svo Stjarnan og Fjölnir og Hamar tekur á móti Skallagrím í Hveragerði.  

Með sigri í kvöld geta Grindvíkingar enn frekar saxað á forystu Keflavíkur og KR í deildinni en liðin á toppnum hafa bæði 20 stig en Keflavík á leik til góða á KR. Grindavík hefur 16 stig í 3. sæti deildarinnar en leikir KR og Grindavíkur hafa verið hreint frábær skemmtun í vetur. Liðin mættust í deildarkeppninni þann 18. október þar sem Grindavík hafði sigur 109-100 í hröðum og skemmtilegum leik. Íslandsmeistarar KR náðu þó að svara fyrir sig í 16 liða úrslitum Lýsingarbikarsins þegar þeir slóu Grindavík úr keppni 104-103 í hádramatískum leik. Körfuknattleiksunnendur fara því með töluverðar væntingar í DHL-Höllina í kvöld.  

Í Ljónagryfjunni mætast Njarðvíkingar og Þór Akureyri en Njarðvík er sem stendur í 4. sæti deildarinnar með 14 stig en Þór hefur 8 stig í 10. sæti deildarinnar. Njarðvíkingar fóru með öruggan 73-101 sigur þegar liðin mættust á Akureyri í upphafi leiktíðar þar sem Brenton Birmingham sallaði niður 20 stigum, tók 9 fráköst og gaf 7 stoðsendingar.  

Hamarsmenn freista þess nú að landa sínum þriðja deildarsigri í röð þegar Skallagrímur kemur í heimsókn en bæði lið hafa verið á fínu róli að undanförnu. Í síðasta leik gerði Hamar góða ferð Norður á Krókinn og lögðu heimamenn 85-88 og Skallagrímur burstaði Stjörnuna í Borgarnesi 89-64 svo gera má ráð fyrir miklum barning í Hveragerði í kvöld. 

Þá taka nýliðar Stjörnunnar á móti Fjölni í Ásgarði og mun Jovan Zdravevski leika sinn fyrsta leik með Stjörnunni og að nýju við hlið félaga síns Dimitars Karadzovski. Eins og fyrr greinir lá Stjarnan stórt í Borgarnesi í síðustu umferð en tefla nú fram breyttu liði en Fjölnir mátti sætta sig við naumt 85-94 tap gegn Íslandsmeisturum KR í Grafarvoginum í síðasta leik. 

Einn leikur fer svo fram í bikarkeppni kvenna í 10. flokki þegar Ármann tekur á móti Haukum kl. 19:00 í Laugardalshöll.  

Það verður því nóg um að vera í körfunni hér heima í kvöld og því um að gera að fjölmenna á vellina! 

Staðan í deildinni

Fréttir
- Auglýsing -