spot_img
HomeFréttirPeningaverðlaun fyrir flottustu troðsluna

Peningaverðlaun fyrir flottustu troðsluna

16:25
{mosimage}

KKÍ hefur vegna fjölda áskorana ákveðið að hafa troðslukeppnina þetta árið þrátt fyrir að hafa gefið út að hún yrði ekki.

Troðslukeppni hefur í gegnum tíðina alltaf vakið mikla athygli í kringum Stjörnuleikina í NBA og hafa aðrar þjóðir tekið keppnina upp.

Það hafa verið margar skemmtilegar troðslukeppnir hér á landi en þær eru bundnar því að þeir erlendu leikmenn sem leika hér hverju sinni séu einhverjir háloftafuglar. Á síðustu árum hefur reynst erfitt að fá aðila til að taka þátt.

Það var búið að gefa út að engin troðslukeppni yrði í ár þar sem ekki er um að ræða eiginlega stjörnuleiki en vegna fjölda áskorana þá hefur verið ákveðið að gera tilraun til að halda troðslukeppni.

Ákveðið hefur verið að veita peningaverðlaun upp á 100.000 krónur fyrir sigurvegarann.

Hægt er að skrá sig hér

www.kki.is

Mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -