21:50
{mosimage}
Breiðablik landaði sínum ellefta deildarsigri í 1. deild karla í kvöld með 74-81 sigri á Haukum í framlengdum leik að Ásvöllum í kvöld.
Marel Örn Guðlaugsson var stigahæstur í liði Hauka með 14 stig en Nemanja Sovic gerði 27 stig í liði Blika.
Valsmenn gerðu góða ferð í Þorlákshöfn og stöðvuðu sigurgöngu Þórsara í deildinni með góðum 80-89 útisigri. Fyrir leikinn í kvöld höfðu Þórsarar unnið sex deildarleiki í röð.
Þá mættust KFÍ og Þróttur Vogum á Ísafirði þar sem heimamenn höfðu góðan 117-97 sigur á botnliði Þróttar.
Nánar síðar…