spot_img
HomeFréttirStórleikur í Sláturhúsinu í kvöld

Stórleikur í Sláturhúsinu í kvöld

12:10
{mosimage}

(Tiffany Roberson hefur verið sjóðheit að undanförnu í Grindavíkurliðinu) 

Tveir leikir fara fram í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í kvöld og hefjast þeir báðir kl. 19:15. Viðureign Keflavíkur og Grindavíkur er mál málanna í kvöld þar sem þessi lið munu um þarnæstu helgi leika til undanúrslita í Lýsingarbikarnum. 

Grindvíkingar hafa verið sjóðheitir að undanförnu og unnið síðustu átta deilarleiki í röð. Keflavík og Grindavík mættust síðast í deildinni þann 1. desember síðastliðinn þar sem Grindavík hafði nauman 92-90 spennusigur í framlengdum leik. Helga Hallgrímsdóttir reyndist hetja Grindavíkur í leiknum er hún náði sóknarfrákasti og gerði sigurkörfu leiksins.  

Það má því reikna með miklum baráttuleik í kvöld en takist Keflavík að hafa sigur í leiknum jafna þær Grindavík að stigum á toppi deildarinnar. Grindavík hefur 24 stig á toppnum fyrir leik kvöldsins en KR og Keflavík hafa bæði 22 stig og eiga bæði leik til góða á Grindavík.  

KR heimsækir Fjölnir í Grafarvoginn í kvöld en Fjölnir situr á botni deildarinnar með 2 stig en hafa verið að sækja í sig veðrið að undanförnu. 

Aðrir leikir dagsins: 

UMFH tekur á móti Árvakri í A-riðli 2. deildar karla kl. 20:00 að Flúðum í kvöld og þá eru einnig nokkrir leikir í bikarkeppni yngri flokka. 

Bikarkeppni yngri flokka:

10. flokkur karla, Þorlákshöfn kl. 20:00 – Hamar/Þór-ÍR
Unglingaflokkur karla, Rimaskóli kl. 20:30 – Fjölnir-Haukar
10. flokkur kvenna, Keflavík kl. 21:00 – Keflavík-UMFN 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -