spot_img
HomeFréttirVerð best á næstu leiktíð

Verð best á næstu leiktíð

13:00
{mosimage}

(Bryndís Guðmundsdóttir) 

Körfuknattleikskonan Bryndís Guðmundsdóttir er nýkomin úr aðgerð á hægra hné en fyrr á tímabilinu sleit hún krossbönd og skaðaði annan liðþófann. Bryndís hóf leiktíðina með miklum látum sem og allt Keflavíkurliðið en í þeim fjórum deildarleikjum sem hún lék með Keflavík gerði hún 20 stig að meðaltali í leik og stefndi allt í glæsta leiktíð hjá Bryndís áður en ósköpin dundu yfir. Hún sagði í samtali við Víkurfréttir að vissulega hefði verið erfitt að kyngja þessum miklu meiðslum en hún er brött og stefnir fastlega að því að ná landsliðsverkefnum síðla sumars. Viðtal úr Víkurfréttum á Suðurnesjum, www.vf.is  

,,Þær sem ég þekki og hafa átt í svipuðum meiðslum segja mér að maður þurfi að bíða í svona ár eftir að geta spilað aftur. Markmiðin mín eru að geta leikið með landsliðinu í ágúst en þetta kemur bara allt í ljós,” sagði Bryndís sem kvaðst bara nokkuð góð þrátt fyrir að vera nýkomin af skurðarborðinu. ,,Það er enn smá dofi í fætinum og hann hverfur ekki strax. Læknirinn ráðlagði mér samt að stíga í löppina en passa mig á því að ofreyna mig ekki. Ég fer bara sem hægast mínar leiðir en ég á ekki að geta skemmt neitt segir læknirinn,” sagði Bryndís en fjarveran frá Keflavíkurliðinu hefur reynst henni þungbær og sér í lagi í þeim leikjum sem Keflavík hefur tapað á þessari leiktíð.  

,,Ég er alveg búin að kyngja þessum meiðslum en þetta var erfitt fyrst, sérstaklega þegar fyrsta tapið okkar kom í deildinni. Það var virkilega erfitt að horfa á þessa tapleiki og sárt að geta ekki hjálpað stelpunum inni á vellinum,” sagði Bryndís en Keflavíkurliðið á í hörðum toppslag við Grindavík, KR og Hauka.  

Bryndís mun útskrifast frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja í vor af félagsfræðibraut og hefur sökum meiðslanna haft nægan tíma fyrir bækurnar. Hún kvaðst ekki hafa verið tíður gestur á videoleigum bæjarins þrátt fyrir meiðslin. ,,Nei, ég er reyndar mikið í tölvunni og líka alveg hætt að velta mér upp úr þessum meiðslum, það er ekki hægt að leggjast í þunglyndi yfir svona löguðu,” sagði Bryndís en hún ætlar sér mikla hluti í körfuboltanum. ,,Ég hef sett mér það að markmiði að verða besti leikamðurinn í deildinni á næstu leiktíð,” sagði Bryndís og ljóst að meiðslin hafa alls engin áhrif haft á hugarfar þessarar miklu keppnismanneskju. 

,,Þessi meiðsli eiga ekki að há mér í framtíðinni en hugsanlega gæti liðþófinn angrað mig þegar ég verði gömul. Annars er ég dugleg að gera æfingarnar mínar og fer brátt til sjúkraþjálfara í Reykjavík og verð einnig í sjúkraþjálfun hér í Keflavík. Nú er aðalatriðið að vinna upp styrk í hnénu.” 

Senn styttist í lokasprett Iceland Express deildar kvenna í körfunni og framundan er toppslagur gegn Grindavík í bikarkeppninni. Hvernig líst Bryndísi á framhaldið hjá Keflavík? ,,Mér líst vel á bikardráttinn. Það hefði verið gaman að fá Grindavík í úrslitaleiknum í Laugardalshöll. Annars er deildarkeppnin töluvert jafnari en í fyrra og sérstaklega eftir að KR komu svona sterkar upp. Þetta er mun skemmtilegra en að hafa tvö yfirburðalið og nú hefur fólk almennt mun meiri áhuga á þessu,” sagði Bryndís en ef allt gengur að óskum þá gæti hún hugsanlega sést í landsliðstreyju síðla sumar en hún ætlar sér þó góðan tíma í bata og eins og fyrr greinir þá eru markmiðið háleit fyrir næstu leiktíð.  

www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -