spot_img
HomeFréttirSigur hjá Helenu og félögum

Sigur hjá Helenu og félögum

15:28
{mosimage}

Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU sigruðu í nótt UNLV í Las Vegas 56-38. TCU hafði þetta í hendi sér allan leikinn og náðu mest 17 stiga forskoti í seinni hálfleik.

UNLV minnkaði muninn í 45-37 þegar að 3 mín voru eftir en Helena skoraði þá þriggjastigakörfur og gerði út um vonir UNLV.
TCU var að frákasta vel og tók til að mynda 22 sóknarfráköst og 48 í heildina.

Helena spilaði vel og var stigahæst með 11 stig, 7 fráköst og 4 stoðsendingar.

Mynd: gofrogs.cstv.com

www.haukar-karfa.is

 

Fréttir
- Auglýsing -