spot_img
HomeFréttirGunnar Einarson hættur með Keflavík?

Gunnar Einarson hættur með Keflavík?

10:40
{mosimage}

(Gunnar Einarsson) 

Körfuknattleiksmaðurinn Gunnar Einarsson hefur ekki leikið með toppliði Keflavíkur í síðustu leikjum liðsins í Iceland Express deild karla. Gunnar er reynslumesti leikmaður liðsins. Birgir Már Bragason formaður Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur vildi ekki ræða mál Gunnars við Morgunblaðið í morgun en sagðist hafa trú á því að hann kæmi aftur í raðir Keflvíkinga. 

Sjálfur neitar leikmaðurinn að tjá sig um málið og því verður tíminn að leiða í ljós hvort Gunnar leiki með Keflavík að nýju, finni sér annað lið eða leggji sigursæla skónna á hilluna. 

www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -