spot_img
HomeFréttirHjörtur til liðs við Þrótt Vogum

Hjörtur til liðs við Þrótt Vogum

22:31
{mosimage}

(Hjörtur í leik með Grindvíkingum) 

Bakvörðurinn Hjörtur Harðarson er genginn til liðs við Þrótt Vogum í 1. deild karla í körfuknattleik. Hjörtur mun því leika með Þrótti það sem af lifir þessari leiktíð en hann var á mála hjá Grindavíkingum. Frá þessu er greint á www.vf.is  

Hjörtur hefur að undanförnu verði í aukahlutverki hjá Grindvíkingum en hefur leikið alls 9 deildarleiki á þessari leiktíð með Grindavík og gert í þeim 0,4 stig að meðaltali í leik. Hjörtur er margreyndur bakvörður og hefur leikið með Keflavík, Haukum, Þór Akureyri og Grindavík en á síðustu leiktíð var hann spilandi þjálfari hjá Haukum. 

Þróttarar eru við botn 1. deildar með 4 stig og leika næst gegn Haukum á föstudagskvöld í íþróttahúsinu í Vogum kl. 20:00. Hjörtur verður orðinn löglegur í liði Þróttar á föstudagskvöld.  

Hjörtur er kærkomin búbót hjá Þrótti þar sem bakvörðurinn ungi Daníel Guðmundsson gekk nýverið í raðir Njarðvíkinga en Daníel var fyrsti leikstjórnandi hjá Þrótti framan af leiktíðinni.  

Leikmannaferill Hjartar Harðarsonar  

www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -