15:14
{mosimage}
Hannes Jónsson
Að loknum drættinum í morgun hófst Hannes S. Jónsson formaður KKÍ handa við að koma leikjaplani íslensku liðanna á hreint ásamt forsvarsmönnum hinna liðanna. Því verkefni er nú lokið og ljóst að íslensk landslið eru að leika alla miðvikudaga og laugardaga frá 27. ágúst til 20. september í haust.
Planið lítur annars þannig út hjá karlaliðinu.
10. september Ísland – Danmörk
13. september Holland – Ísland
17. september Ísland – Svartfjallaland
20. september Austurríki – Ísland
Hjá kvennaliðinu er planið á þessa leið.
27. ágúst Ísland – Sviss
30. ágúst Holland – Ísland
3. september Ísland – Slóvenía
6. september Írland – Ísland
10. september Svartfjallaland – Ísland
Mynd: www.karfan.is