Sem fyrr segir skipti UMFG um kana og sá nýji er Jamaal Williams, 25 ára piltur sem útskrifaðist frá Washington háskólanum 2005-2006 þar sem hann lék m.a. með Brandon Roy ( Portland Trail Blazers). Hjá Washington skólanum var Williams með um 14 stig að meðaltali í leik á sínu loka ári. ,,Hann hefur líka leikið í Frakklandi, Argentínu og í CBA deildinni. Ég hef fulla trú á því að Williams passi inn í liðið en það er alltaf áhætta í svona aðgerðum. Ef maður þorir ekki að taka svona ákvörðun þá er eins gott að hætta þessu, ég bara stend og fell með þessu en núna tel ég okkur betur í stakk búna fyrir úrslitakeppnina,” sagði Friðrik Ragnarsson þjálfari UMFG. Williams kom til landsins í morgun og mun leika sinn fyrsta leik með Grindavík gegn Snæfell á útivelli föstudaginn 7. mars næstkomandi.