spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaAníka með nýliðum ÍR á komandi tímabili

Aníka með nýliðum ÍR á komandi tímabili

Nýliðar ÍR hafa framlengt samningi sínum við framherjann Aníku Hjálmarsdóttur fyrir komandi tímabil í Subway deild kvenna.

Aníka var lykilleikmaður á síðasta tímabili fyrir liðið er það vann sig upp úr fyrstu deildinni, skilaði 11 stigum, 9 fráköstum og 2 vörðum skotum að meðaltali í leik.

Samkvæmt fréttatilkynningu er frekari frétta að vænta af leikmannamálum nýliða ÍR á næstunni.

Fréttir
- Auglýsing -